Knattspyrnusumarið 2021 verður mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Knattspyrnudeild Selfoss býður upp á fjölmörg flott sumarnámskeið fyrir áhugasama og fjöruga krakka. Allir sem koma á námskeið hjá deildinni geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem menn hafa æft lengi eða eru að byrja á sínum fyrstu æfingum. Þjálfarar námskeiðanna eru vel menntaðir og reyndir í þjálfun og kennslu. Skólastjóri knattspyrnuskólans er Fanney Úlfarsdóttir. Leikmenn meistaraflokka og efnilegir yngri leikmenn munu einnig leiðbeina á námskeiðunum.
Námskeið 1
Dagsetningar: 14.júní – 25.júní
Fyrir börn fædd 2009 – 2014 (1. - 6. bekkur)
Verð á námskeiði 14.000kr
Skráning selfoss.felog.is
Tveggja vikna námskeið fyrir alla aldurshópa. Við brjótum upp dagana fyrir eldri aldurshópana með hjólaferð og dagsferð
um um Selfoss þar sem farið er á alla litlu fótboltavellina á Selfossi
og leikvelli á svæðinu sem og góðir gestir kíkja í heimsókn. Námskeiðinu lokum við með grillveislu og óvæntum uppákomum.
Námskeið 2
Dagsetningar: 28.júní – 9.júlí
Fyrir börn fædd 2009 – 2014 (1. - 6. bekkur)
Verð á námskeiði 14.000kr
Skráning selfoss.felog.is
Tveggja vikna námskeið þar sem við leggjum aðal áherslu á spil á litlum völlum, einn gegn einum og skot. Mjög skemmtilegt námskeið strax eftir fyrstu mót sumarsins. Námskeiðinu lokum við með grillveislu og óvæntum uppákomum.
Námskeið fyrir lengra komna
Dagsetningar 14.júní – 25.júní
Fyrir börn fædd 2008 - 2009
Verð á námskeiði 14.000kr
Skráning selfoss.felog.is
Tveggja vikna námskeið fyrir þá sem eru lengra komnir og vilja bæta sig enn frekar. Lögð verður áhersla á að iðkendur geti bætt tækni, hreyfifærni og líkamlegan styrk ásamt því að auka leikskilning. Æfingahópar U15 og U16 landsliða karla og kvenna munu æfa á svæðinu á sama tíma og kíkja í heimsókn. Námskeiðið er ætlað þeim sem að hafa æft knattspyrnu og hafa nokkuð góðan grunn.
Boltaskólinn
Dagsetningar 12.júlí – 16. júlí
Fyrir börn fædd 2015-2016
Verð á námskeiði 14.000kr
Skráning selfoss.felog.is
Viku námskeið fyrir yngstu iðkendurna þar sem lögð verður áhersla á grunnatriði í knattspyrnu, leiki og fjölbreytta hreyfingu. Námskeiðinu lokum við með grillveislu og óvæntum uppákomum.
Öll namskeiðin eru frá kl. 09:00 – 11:00 mánudaga til föstudaga
Önnur námskeið auglýst síðar
Frekari upplýsingar um námskeið deildarinnar eru á netfanginu fanneyulfars@gmail.com
Öll námskeiðin eru haldin á æfingasvæði deildarinnar við Engjaveg og er mikill metnaður lagður í hvert námskeið.
Öll námskeið knattspyrnudeildarinnar eru getu og aldursskipt og áhersla lögð á að einstaklingurinn njóti sín. Aðal áhersla er lögð á grunn og fíntækni með skipulögðum og vel upp settum æfingum með skemmtilegum leikjum og mikilli útiveru. Samvera og samstaða er stór þáttur á öllum námskeiðunum og er mikið lagt upp úr samvinnu og að krakkarnir virði hvort annað.
Allar aðrar upplýsingar um námskeið, æfingatíma og þjálfara deildarinnar er að finna á selfoss.net/knattspyrna